Lausar eru til umsóknar 5 sérnámsstöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrun við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Hver sérnámsstaða er 80% og veitist frá 1. ágúst 2023 til eins árs. Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Námið samanstendur af fræðilegu námi við Háskólann á Akureyri og klínískri þjálfun á heilsugæslustöð undir handleiðslu lærimeistara. Námið er skipulagt til eins árs og lýkur með diplóma gráðu. Umsóknarfrestur er til og með 27. mars nk.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um hjúkrunarmenntun ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2023
Sesselja Guðmundsdóttir
–
[email protected]
–
513-5046
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild – Öflugt starfsþróunarár í boði Lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri auglýsir lausa 70-100% stöðu hjúkrunarfræðings. Staðan er laus...
Sækja um starfHeilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir tímabundið starf Iðjuþjálfa laust til umsóknar vegna leyfis Um er að ræða fullt starf iðjuþjálfa hjá Heilbrigðisstofnun...
Sækja um starfSérfræðilæknir á sýkla- og veirufræðideild Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis með sérhæfingu í sýkla- og/eða veirufræði. Æskilegt starfshlutfall er...
Sækja um starfHjúkrunardeildarstjóri Öldrunarlækningardeild Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs til...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á sjúkrasvið Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu? Framundan er mikil uppbygging á HSS og...
Sækja um starf