
Sjúkraliði á líknardeild Landspítala
Deildin er hugsuð fyrir tímabundna innlögn sjúklinga með ólæknandi, langt genginn sjúkdóm og skertar lífslíkur. Markmiðið er að bæta lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Á deildinni eru 12 legurými og er starfsemin byggð á hugmyndafræði líknarmeðferðar. Áhersla er lögð á fjölskylduhjúkrun og teymisvinnu.
» Þátttaka í fjölskylduhjúkrun
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
» Faglegur metnaður
» Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
» Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á radningarkerfi.orri.is.