Lýsing – inngangur
Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt. Um er að ræða 100% framtíðarstarf í dagvinnu og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Starfshlutfall er samkomulag.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Sara Guðmundsdóttir, Yfirsjúkraþjálfari
–
[email protected]
–
4220500
Sumarafleysing í sjúkraflutningum/húsumsjón á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi óskar eftir aðila í sjúkraflutinga/húsumsjón í sumarafleysingar. Ráðningartími frá 1. júní...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur á heilsugæslustöðina í Ólafsvík Hjúkrunarfræðingur óskast í ársafleysingu á heilsugæslustöðina í Ólafsvík og tilfallandi verkefni á heilsugæslustöðinni í Grundarfirði....
Sækja um starfSjúkraliðar Nú fjölgum við rýmum á HSS! Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að...
Sækja um starfSérfræðilæknir á sýkla- og veirufræðideild Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis með sérhæfingu í sýkla- og/eða veirufræði. Æskilegt starfshlutfall er...
Sækja um starfViltu vera á skrá? Félagsráðgjafi Hér geta félagsráðgjafar með starfsleyfi skráð almenna starfsumsókn. Almennum starfsumsóknum er ekki svarað sérstaklega. Þær...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á lyflækningadeild Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á lyflækningadeild en einnig kemur til greina að ráða inn...
Sækja um starf