Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða eða sjúkraliðanema í sumarafleysingar á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Almenn sjúkraliðastörf á hand- og lyflækningadeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Verkefnin eru afar fjölbreytt og því kjörið tækifæri til að ná sér í góða reynslu.
Íslenskt starfsleyfi eða staðfesting á námi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Þórhalla Ágústsdóttir
–
[email protected]
–
470-1453
Sigríður Kristinsdóttir
–
[email protected]
–
471-1453 & 864-0239
Sálfræðingur Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sálfræðings á Eldri barna sviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við...
Sækja um starfSérfræðingur í öldrunar- eða heimilislækningum – Sjúkrahúsið á Akureyri Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða sérfræðing í öldrunar- eða...
Sækja um starfSumarafleysingar fæðingadeild – Ljósmæður Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsókna 60-100 % stöður ljósmæðra við fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast á Móberg hjúkrunarheimili HSU á Selfossi Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast til starfa á glænýtt hjúkrunarheimili, Móberg,...
Sækja um starfSumarafleysingar myndgreiningadeild – Geislafræðingar/geislafræðinemar Sumarafleysingastöður geislafræðinga á myndgreiningardeild eru lausar til umsóknar. Næsti yfirmaður er Elvar Örn Birgisson, forstöðugeislafræðingur. Helstu...
Sækja um starfSjúkraliði – Fjarðabyggð – Heimahjúkrun – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar í heimahjúkrun...
Sækja um starf