Laus er til umsóknar 80-100% staða sjúkraliða á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Þóra Ester Bragadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, auglýsingar á lausum störfum.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðlum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.01.2023
Þóra Ester Bragadóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Læknanemar í sumarafleysingar á HSN Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri auglýsir eftir læknanemum í sumarafleysingar. Ráðningartími er frá 1. júní...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur óskast á göngudeild bæklunarskurðlækninga Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á göngudeild bæklunarskurðlækninga í Fossvogi. Deildin er göngudeild (fyrrum endurkomudeild BMT)...
Sækja um starfSjúkraliði- Heimahjúkrun HH Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sjúkraliða í vaktavinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld-...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSUMARSTÖRF 2023 – Læknanemar sem lokið hafa 1., 2. eða 3. námsári Laus eru til umsóknar sumarstörf við umönnun fyrir...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á skurðlækningadeild. Um er að ræða vaktavinnu og er staðan...
Sækja um starf