Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sjúkraþjálfara í nýtt og spennandi starf í endurhæfingarteymi heimahjúkrunar. Heimahjúkrun HH sér um hjúkrun í heimahúsum fyrir íbúa í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi. Um er að ræða ótímabundið 50%, dagvinnu starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. apríl n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi. Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Sjúkraþjálfari vinnur í þverfaglegu teymi við að aðstoða skjólstæðinga til að vera eins virkir og sjálfstæðir í daglegu lífi og hægt er, þannig að þeir geti verið sem lengst sjálfbjarga á eigin heimili. Sjúkraþjálfari metur og greinir líkamlega færni skjólstæðings sem og stoðkerfisvandamál. Hann veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra varðandi hreyfingu og þjálfun. Sjúkraþjálfari skipuleggur og veitir þjónustu á sínu fagsviði í samráði við teymi. Hann hefur að leiðarljósi að ná fram þeim endurhæfingarmarkmiðum sem skjólstæðingur setur sér á hverjum tíma og tekur þátt í að endurmeta markmiðin í samráði við skjólstæðing og teymi. Sjúkraþjálfari veitir skjólstæðingum og aðstandendum þeirra ráðgjöf varðandi meðferð, úrræði og forvarnir sem stuðla að færni skjólstæðings til að sinna daglegum þörfum sínum. Lögð er áhersla á aðgengilega þjónustu og að skjólstæðingar séu virkir í meðferð. Sjúkraþjálfari tekur virkan þátt í þverfaglegu samstarfi, handleiðslu, fræðslu og starfsmannafundum. Hann vinnur sjálfstætt við athuganir mat og ráðgjöf.
-Löggilt starfsleyfi frá landlækni sem sjúkraþjálfari
-A.m.k. 3 ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
-Geta til að starfa sjálfstætt
-Reynsla af sjúkraþjálfun aldraðra æskileg
-Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
-Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
-Góð íslensku og enskukunnátta
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 19.01.2023
Hildur Sigurjónsdóttir
–
[email protected]
Iðjuþjálfi – Fjölbreytt starf á öldrunarlækningadeildum Landspítala Viltu öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins!Iðjuþjálfun vill ráða til starfa öflugan liðsmann sem...
Sækja um starfStarfsmaður í eldhúsi Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður starfsmanna í eldhúsi við Sjúkrahúsið á Akureyri. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna. ...
Sækja um starfMálastjóri – Geðheilsuteymi HH vestur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) leitar eftir einstaklingi með menntun á félags- eða heilbrigðisvísindasviði í starf málastjóra...
Sækja um starfAðstoðarmaður sjúkraþjálfara HVE Akranesi óskar eftir að ráða aðstoðarmann sjúkraþjálfara til starfa. Um er að ræða 80-100% stöðu í dagvinnu....
Sækja um starfLyfjafræðingur – Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar 80% staða lyfjafræðings í sjúkrahúsapóteki Sjúkrahússins á Akureyri. Um framtíðarstarf er...
Sækja um starfLæknir – vera á skrá hjá HSU Hér geta læknar með starfsleyfi og læknanemar skráð almenna starfsumsókn Umsóknir hverfa eftir...
Sækja um starf