Heimahjúkrun HH leitar eftir hjúkrunarfræðingi í sumarstarf. Um er að ræða tímabundið vaktavinnustarf á morgun-, kvöld- og helgarvaktir, starfshlutfall er 50-90% eða skv samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. maí eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.
Starfshlutfall er 50-90%
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023
Hildur Sigurjónsdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunarfræðingur á barnadeild-Komdu í lið með okkur Við viljum fjölga í okkar öfluga og góða teymi á barnadeild og óskum...
Sækja um starfSérfræðingur í barna og unglingateymi Laus er til umsóknar 50-100% staða sérfræðings í barna- og unglingateymi BUG við Sjúkrahúsið á...
Sækja um starfSumarafleysingar lyflækningadeild – Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður sjúkraliða/sjúkraliðanema við lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti yfirmaður er...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/Hjúkrunarnemi óskast í sumarafleysingu á heilsugæslustöð HSU Rangárþingi sumarið 2023 Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum...
Sækja um starfSumarafleysingar fæðingadeild – Ljósmæður Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsókna 60-100 % stöður ljósmæðra við fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti...
Sækja um starf