Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir skrifstofu- og kerfisstjóra í ótímabundið starf við Geðheilsuteymi austur sem er þverfaglegt meðferðarteymi. Starfshlutfall er 70% eða eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. mars n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Geðheilsuteymi austur þjónustar íbúa í Breiðholti, Grafarvogi, Grafarholti, Árbæ, Mosfellsbæ og Kjalarnesi. Teymið er til húsa að Stórhöfða 23. Við Geðheilsuteymið starfa geðlæknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliði, þroskaþjálfi, sálfræðingar, fjölskyldufræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, íþróttafræðingur og notendafulltrúar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Sigríður Hrönn Bjarnadóttir
–
[email protected]
–
821-2379
Verkefnisstjóri fjármála Menntavísindasvið Háskóla Íslands óskar eftir að ráða fjármálastjóra í fullt starf. Fjármálastjóri hefur það megin hlutverk að hafa...
Sækja um starfSamskiptafulltrúi á skrifstofu forstjóra Laus er til umsóknar staða samskiptafulltrúa á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða 70-80% stöðu...
Sækja um starfLaunafulltrúi Starf launafulltrúa á launadeild Landspítala er laust til umsóknar. Um er að ræða fullt dagvinnustarf sem felur í sér...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfMóttökuritari – Neskaupstaður – Heilsugæsla/Umdæmissjúkrahús Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulipran einstakling með mikla samskiptahæfni í tvær...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starf