Laust er til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu menningar og fjölmiðla í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Ráðuneytið tók til starfa 1. febrúar 2022, sbr. forsetaúrskurð nr. 6/2022, eftir breytingar á verkaskiptingu Stjórnarráðs Íslands í árslok 2021. Hlutverk skrifstofu menningar og fjölmiðla er að sjá til þess að ávallt sé unnið faglega að undirbúningi mála á sviði menningar, lista, safna, íslenskrar tungu, skapandi greina, fjölmiðla og höfundaréttar. Þá fer skrifstofan með alþjóðlegt samstarf á þeim málefnasviðum sem undir hana heyra í samvinnu við utanríkisráðuneytið. Lögð er rík áhersla á samráð við önnur ráðuneyti, Alþingi, hagsmunaaðila og almenning
Skrifstofustjóri leiðir starf skrifstofunnar og ber ábyrgð á stefnumótun, framfylgd markmiða og stýrir daglegum störfum. Í starfinu felst ábyrgð á faglegri upplýsingagjöf og ráðgjöf til ráðherra og ráðuneytisstjóra sem og ábyrgð á því að vinna að framgangi og árangri verkefna skrifstofunnar og stofnana ráðuneytisins á viðkomandi málefnasviðum. Skrifstofustjóri ber jafnframt ábyrgð á gerð fjármálaáætlunar á málefnasviðum skrifstofunnar og fjármálum hennar auk þess sem hann tekur þátt í faglegri framkvæmd verkefna og alþjóðlegu samstarfi. Á skrifstofu menningar og fjölmiðla starfa 14 sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið, þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 19. gr. laga nr. 115/2011, hefur lokið störfum. Skipað er í embættið til fimm ára, sbr. ákvæði laga nr. 115/2011 og nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma. Áhugasamt fólk, óháð kyni, sem uppfyllir hæfniskröfur, er hvatt til að sækja um embættið. Upplýsingar um starfið veitir Ingvi Már Pálsson ráðuneytisstjóri í síma 545 9800
Umsókn skal vera skrifleg og henni skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi til að gegna embættinu, umsagnaraðilum og öðru sem máli kann að skipta. Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2023 og skal skila umsókn inn í gegnum Starfatorg. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipan liggur fyrir. Reykjavík 17. mars 2023
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Ingvi Már Pálsson, Ráðuneytisstjóri
–
[email protected]
–
5459800
Aðstoðarskólameistari Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólameistara FB. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti menntar fólk til lokaprófs úr framhaldsskóla. Sýn skólans er...
Sækja um starfForstöðulæknir bæklunarskurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar staða forstöðulæknis bæklunarskurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan veitist frá...
Sækja um starfEmbætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri Menntaskólinn á Akureyri er hefðbundinn bóknámsskóli með bekkjakerfi en náminu er þó skipt í áfanga...
Sækja um starfDeildarstjóri óskast til starfa á Sjúkra- og göngudeild HSU í Vestmannaeyjum HSU leitar eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi sem vill takast á...
Sækja um starfEmbætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík er opinber framhaldsskóli og hefur starfað sem slíkur frá árinu 1979 en...
Sækja um starfGildi Leikskóla Seltjarnarness eru jákvæðni, virðing og fagmennska. Þessi gildi hefur starfsmannahópurinn sameinast um að starfa eftir og eru þau...
Sækja um starf