Starfsmaður óskast til starfa hjá Blóðbankanum við Snorrabraut. Um er að ræða fjölbreytt starf við öflun og móttöku blóðgjafa og í kaffistofu blóðgjafa. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og tækifæri til starfsþróunar. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu reyndra starfsmanna.
Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma og bakvöktum. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti. Í Blóðbankanum starfa um 55 manns, hjúkrunarfræðingar, náttúrufræðingar, lífeindafræðingar, læknar og aðrir starfsmenn og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið allra starfsmanna að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérhæfður starfsmaður, Almenn störf ,
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Ína Björg Hjálmarsdóttir
–
[email protected]
Skurðhjúkrunarfræðingar/ hjúkrunarfræðingar á skurðstofur. Við leitumst eftir að ráða inn skurðhjúkrunarfræðinga á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Einnig kemur til greina að...
Sækja um starfSérnámsstaða í heilsugæsluhjúkrun Laus er til umsóknar ein sérnámsstaða hjúkrunarfræðings í heilsugæsluhjúkrun við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Sérnámsstaðan er 80% og veitist...
Sækja um starfStarfsmaður óskast til ræstingarstarfa í sumarafleysingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar af starfsmanni til að starfa í sumar...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heilsugæslan Efra-Breiðholt Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið...
Sækja um starfMannauðsstjóri Rekstrar- og mannauðssvið auglýsir eftir öflugum mannauðsstjóra. Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi með mikla reynslu af mannauðsmálum, í starf...
Sækja um starfYfirlæknir barna- og unglingageðdeildar BUGL Starf yfirlæknis barna- og unglingageðdeildar BUGL er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta...
Sækja um starf