Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), auglýsir til umsóknar 100% stöðu starfsmanns í geðheilsuteymi með starfstöð á Akureyri. Leitað er að heilbrigðisstarfsmanni sem er tilbúinn að taka þátt í starfi geðheilsuteymis HSN og vinna að frekari uppbyggingu þjónustu teymisins. Geðheilsuteymi HSN er þverfaglegt endurhæfingar- og meðferðarteymi fyrir einstaklinga 18 ára og eldri. Mikil áhersla er lögð á samvinnu við aðrar stofnanir samfélagsins s.s. félagsþjónustu og barnavernd. Næsti yfirmaður er teymisstjóri geðheilsuteymis.
Stefnt er að ráðningu frá og með 1. maí 2023 eða eftir samkomulagi
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Geðheilsuteymið er 2. stigs þjónusta sem veitir sérhæfða endurhæfingu og meðferð vegna geðraskana án innlagna á sjúkrahús. Markhópar þjónustu teymisins eru þeir einstaklingar með geðraskanir sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að veita í fyrstu línu heilsugæslunnar en þurfa ekki á þjónustu geðdeildar að halda.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi starfsferliskrá og upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Svana Rún Símonardóttir, Teymisstjóri geðheilsuteymis HSN
–
[email protected]
–
432 4978
Pétur Maack Þorsteinsson, Yfirsálfræðingur
–
[email protected]
–
432 4970
Hjúkrunarnemar í sumarafleysingar á HSN Húsavík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir að ráða hjúkrunarnema á hjúkrunar- og sjúkrasvið í...
Sækja um starfSérfræðingur í öldrunar- eða heimilislækningum – Sjúkrahúsið á Akureyri Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða sérfræðing í öldrunar- eða...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á sjúkrasvið Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu? Framundan er mikil uppbygging á HSS og...
Sækja um starfSálfræðingur fullorðinna – Heilsubrú Erum við að leita af þér? Heilsubrú leitar að sálfræðingi í 100% tímabundið starf til eins...
Sækja um starfSjúkraliði Kristnesspítali Laus er til umsóknar 80-100 % staða sjúkraliða við Kristnesspítala þar sem fara fram endurhæfinga og öldrunarlækningar Sjúkrahússins...
Sækja um starfSumarafleysinga við umönnun aldraðra á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir Vestmannaeyjum óskar eftir starfsfólki til...
Sækja um starf