Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingar í ræstingum og/eða þvottahúsi hjá þjónustudeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi.
Vinna við ræstingar og/eða í þvottahúsi í þjónustudeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Borghildur F. Kristjánsdóttir
–
[email protected]
–
470-1482 / 868-8725
Aðstoðarmaður við hjúkrun – Neskaupstaður – Hjúkrunardeild – SUMARAFLEYSING 2023 HSA óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingar við aðhlynningu...
Sækja um starfStarfsmaður í þjónustudeild – Egilsstaðir – ræsting og/eða þvottahús – SUMARAFLEYSINGAR 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann...
Sækja um starfStarfsfólk í eldhús í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir starfsmönnum í eldhús í sumarafleysingar. Ráðningartími...
Sækja um starfLjósmóðir í sumarafleysingar á HSN Dalvík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Dalvík óskar eftir ljósmóður í sumarafleysingar á heilsugæslustöð. Helstu verkefni...
Sækja um starfHjúkrunarnemar í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir að ráða hjúkrunarnema í sumarafleysingar á hjúkrunar- og...
Sækja um starfStarfsfólk í eldhúsi í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsfólki í eldhús í sumarafleysingar. Helstu...
Sækja um starf