Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingar í ræstingar og/eða störf í þvottahúsi hjá þjónustudeild HSA á Seyðisfirði. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Ræstingar og/eða störf í þvottahúsi hjá HSA Seyðisfirði.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Stefanía Stefánsdóttir
–
[email protected]
–
470-3058 & 846-5037
Sjúkraliði á heilsugæslu – sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða sjúkraliða í sumarafleysingu á heilsugæslustöðina á Ísafirði. ...
Sækja um starfStarfsfólk í aðhlynningu og ræstingar í Bolungarvík – Sumarstörf Við leitum eftir fólki í sumarafleysingar í störf við aðhlynningu og...
Sækja um starfStarfsfólk í ræstingar í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar við ræstingar. Helstu...
Sækja um starfAðstoðarmaður í eldhúsi – Fáskrúðsfjörður – Hjúkrunarheimilið Uppsalir – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann í...
Sækja um starfMóttökuritari í sumarafleysingar á HSN Skagaströnd Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Skagaströnd óskar eftir móttökuritara á heilsugæslu. Starfsmaðurinn sinnir einnig afgreiðslu í...
Sækja um starfStarfsfólk í aðhlynningu í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir starfsfólki í aðhlynningu á hjúkrunarsviði....
Sækja um starf