Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingu í aðhlynningu við hjúkrunardeildina í Víðihlíð í Grindavík. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt. Í Víðihlíð er 20 rúma langlegudeild fyrir aldraða ásamt því að allri heimahjúkrun er sinnt frá deildinni. Unnið er í vaktavinnu á dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Starf í aðhlynningu er bæði fjölbreytt og krefjandi. Starfsmenn starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn og markmiðum deildarinnar.
Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2023
Ingibjörg R Þórðardóttir
–
[email protected]
–
422-0700
Læknir í sumarafleysingar á HSN Dalvík Heilbrigðisstofnun Norðurlands Dalvík óskar eftir að ráða lækni í sumarafleysingar. Ráðningartími er frá 1....
Sækja um starfStarfsmaður í eldhúsi Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður starfsmanna í eldhúsi við Sjúkrahúsið á Akureyri. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna. ...
Sækja um starfSumarafleysingar – læknar/læknanemar Sumarafleysingar Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða lækna og læknanema í sumarafleysingastörf, um er að ræða tímabundið...
Sækja um starfSjúkraliðar í sumarafleysingar á HSN Siglufirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði (HSN) óskar eftir sjúkraliðum í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall er...
Sækja um starfStarfsmannahjúkrunarfræðingur Mannauðsdeild Landspítala óskar eftir að ráða starfsmannahjúkrunarfræðing til starfa til að sinna ráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda. Við leitum...
Sækja um starfLjósmóðir í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir ljósmóður í sumarafleysingar á heilsugæslustöð. Æskilegt er að...
Sækja um starf