Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarfræðinema í afleysingarstörf á heilsugæslustöð. Um er að ræða störf í dagvinnu.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Starfsemi á heilsugæslunni í Reykjanesbæ er fjölbreytt, læknamóttaka, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttaka. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Andrea Klara Hauksdóttir
–
[email protected]
–
4220500
Starfsmaður í eldhúsi Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður starfsmanna í eldhúsi við Sjúkrahúsið á Akureyri. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna. ...
Sækja um starfHjúkrunarnemar á 1.- 4. ári – Hlutastörf með námi á smitsjúkdómadeild Langar þig í hvetjandi og lærdómsríkt starf þar sem...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSkemmtilegt sumarstarf – Sjúkraliði Heimahjúkrun HH leitar eftir sjúkraliða í sumarstarf. Um er að ræðir tímabundið vaktavinnu starf þar sem...
Sækja um starfVið leitum að jákvæðum og öflugum hjúkrunarfræðingi til að hafa umsjón með heilsugæslu Alcoa Fjarðaáls. Heilbrigði og vellíðan starfsmanna eru...
Sækja um starf