Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarfræðinema í afleysingastörf á slysa- og bráðadeild. Um er að ræða vaktavinnu.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Slysa- og bráðamóttaka HSS er opin allan sólarhringinn og sinnir slösuðum og bráðveikum. Þar fer einnig fram brotaendurkoma. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Ásta Kristbjörg Bjarnadóttir
–
[email protected]
–
422-0500
Hjúkrunarnemar í sumarafleysingar á HSN Húsavík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir að ráða hjúkrunarnema á hjúkrunar- og sjúkrasvið í...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Fjarðabyggð – Heilsugæsla – Afleysing Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í afleysingu til starfa á...
Sækja um starfSálfræðingur barna og unglinga – Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að sálfræðingi sem hefur brennandi áhuga...
Sækja um starfSérfræðilæknir á sýkla- og veirufræðideild Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis með sérhæfingu í sýkla- og/eða veirufræði. Æskilegt starfshlutfall er...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í heimahjúkrun sumarafleysingar. Ráðningartími...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Efra-Breiðholt Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Efra-Breiðholti. Viðkomandi þarf...
Sækja um starf