Vegna sumarafleysinga er laus staða sjúkraþjálfara og/eða sjúkraþjálfanema við Sjúkrahúsið á Akureyri.
Faglegur yfirmaður er Lucienne ten Hoeve, yfirsjúkraþjálfari, forstöðulæknir er Arna Rún Óskarsdóttir.
Sjúkraþjálfarar við SAk starfa á tveimur starfsstöðvum, á bráðadeildum sjúkrahússins við Eyrarlandsveg og á Kristnesspítala þar sem fram fara endurhæfinga- og öldrunarlækningar.
Í starfinu felst almenn vinna sjúkraþjálfara í þverfaglegu umhverfi. Um fjölbreytt starf er að ræða, áhersla er lögð á góða þjónustu við skjólstæðinga, þverfaglegt samstarf og faglega þróun sjúkraþjálfunar. Verkefni og ábyrgð í starfi eru í samræmi við reynslu og/eða hversu langt umsækjandi er kominn í námi.
Staðan sem um ræðir er við bráðadeildir en þó með þeim fyrirvara að hana getur þurft að flytja milli starfsstöðva. Verkleg kennsla nema í sjúkraþjálfun fer fram á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða dagvinnu og einstaka vakt um helgar ef reynsla er fyrir hendi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2023
Lucienne ten Hoeve
–
[email protected]
–
860-0547
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Starfsmaður í umönnun Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla...
Sækja um starfSumarafleysingar geðdeild – Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarnema við geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heilsugæslan Efra-Breiðholti Heilsugæslan Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar óskast á glænýtt hjúkrunarheimili, Móberg, HSU á Selfossi Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar óskast til starfa á glænýtt hjúkrunarheimili,...
Sækja um starfLaus störf til umsóknar fyrir lækna og læknanema við HSU á Selfossi sumarið 2023 Við auglýsum eftir læknum og læknanemum...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starf