Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsókna stöður hjúkrunarfræðinga og/eða 3ja árs hjúkrunarnema við barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Möguleiki að hefja störf fyrir sumarið.
Næsti yfirmaður er Aðalheiður Guðmundsdóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Aðalheiður Guðmundsdóttir
–
[email protected]
–
463-0163
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild í Fossvogi Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á bráðaöldrunarlækningadeild B-4 Fossvogi. Deildin er 22 rúma og...
Sækja um starfSjúkraliði í fast starf á HSN Húsavík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir sjúkraliða í fast starf á sjúkradeild HSN...
Sækja um starfSumarstarf sem ritari/aðstoðmaður á Lyflækningadeild HSU Selfossi Lyflækningadeild HSU á Selfossi óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan starfsmann í...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heilsugæslan Sólvangi Heilsugæslan Sólvangi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi óskast í sumarafleysingu á heilsugæslustöð HSU Selfossi sumarið 2023 Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Glæsibæ Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Glæsibæ. Viðkomandi þarf...
Sækja um starf