Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarnema á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri.
Næsti yfirmaður er Kristín Ragnarsdóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur bráðamóttöku.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Kristín Ósk Ragnarsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Starfsfólk í aðhlynningu – sumarafleysingar Við leitum eftir fólki í aðhlynningu til að leysa af í sumar á hjúkrunarheimilinu Tjörn...
Sækja um starfSumarafleysing – Sjúkraliðar á slysa- og bráðamóttökudeild Sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða á slysa-og bráðamóttökudeild í sumarafleysingar....
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur óskast í dagvinnu á kvenlækningadeild 21A Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í móttökudeild á kvenlækningadeild 21A Landspítala. Í boði er...
Sækja um starfSumarafleysing símavakt – Móttökuritari Laust er til umsóknar afleysing í starf móttökuritara á símavakt Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSumarafleysingar Kristnesspítali – Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga/hjúkrunarnema við Kristnesspítala. Næsti yfirmaður er Eygló Brynja Björnsdóttir...
Sækja um starf