Laus eru til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir nema í hjúkrunarfræði sem lokið hafa 3. námsári fyrir sumarið 2023.
Í boði eru fjölbreytt störf víða um spítalann, hvar liggur þinn áhugi?
Ekki verða auglýst sumarstörf sérstaklega niður á deildir/þjónustukjarna svo vinsamlega skráið óskir um deildir/ þjónustukjarna í reitinn „annað“ neðst á umsóknareyðublaðinu og forgangsraðið þar sem númer eitt er fyrsta val.
Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út, og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Með umsókn skal fylgja
Forsenda ráðningar sem háskólanemi hjá Landspítala er að viðkomandi skili staðfestum gögnum um námsframvindu um leið og þau liggja fyrir að loknu vormisseri.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal, öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum.
Athugið að allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.
Nánari upplýsingar um störfin veita eftirfarandi mannauðsstjórar :
Skurðlækningaþjónusta, skurðstofur og gjörgæsla, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, [email protected], 543 7254
Geðþjónusta, Sigríður Edda Hafberg, [email protected], 543 4453
Hjarta- og æðaþjónusta, Anna Dagný Smith, [email protected], 543 3013
Krabbameinsþjónusta, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, [email protected], 543 7254
Lyflækninga- og bráðaþjónusta, Sigríður Edda Hafberg, [email protected], 543 4453/ Bára Benediktsdóttir, [email protected], 543 1787
Kvenna- og barnaþjónusta, Hrönn Harðardóttir, [email protected], 897 5600
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunarnemar í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir að ráða hjúkrunarnema í sumarafleysingar á hjúkrunar- og...
Sækja um starfStarfsfólk við ræstingu í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir starfsmönnum í ræstingar. Ráðningartímabil frá lok...
Sækja um starfSumarstörf – Ráðgjafar á Bjargey meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofa leitar að ráðgjöfum í sumarafleysingar á Bjargey, meðferðarheimili fyrir unglinga. Um...
Sækja um starfLjósmóðir í sumarafleysingar á HSN Dalvík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Dalvík óskar eftir ljósmóður í sumarafleysingar á heilsugæslustöð. Helstu verkefni...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar í sumarafleysingar á HSN Húsavík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar á sjúkra- og hjúkrunarsvið. Ráðningartími...
Sækja um starfStarfsfólk í ræstingar í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar við ræstingar. Helstu...
Sækja um starf