Laus eru til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir sjúkraliða og sjúkraliðanema sumarið 2023.
Í boði eru fjölbreytt störf víða um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi?
Ekki verða auglýst sumarstörf sérstaklega niður á deildir/þjónustukjarna svo vinsamlega skráið óskir um deildir/ þjónustukjarna í reitinn „annað“ neðst á umsóknareyðublaðinu og forgangsraðið þar sem númer eitt er fyrsta val.
Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út, og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal, öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum.
Athugið að allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.
Nánari upplýsingar um störfin veita eftirfarandi mannauðsstjórar :
Skurðlækningaþjónusta, skurðstofur og gjörgæsla, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, [email protected], 543 7254
Geðþjónusta, Sigríður Edda Hafberg, [email protected], 543 4453
Hjarta- og æðaþjónusta, Anna Dagný Smith, [email protected], 543 3013
Krabbameinsþjónusta, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, [email protected], 543 7254
Lyflækninga- og bráðaþjónusta, Sigríður Edda Hafberg, [email protected], 543 4453/ Bára Benediktsdóttir, [email protected], 543 1787
Kvenna- og barnaþjónusta, Hrönn Harðardóttir, [email protected], 897 5600
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, sjúkraliðanemi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Sigurbjörg Dagmar Hjaltadóttir
–
[email protected]
Sjúkraliði – Egilsstaðir – Hjúkrunarheimilið Dyngja – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða á Hjúkrunarheimilinu Dyngju...
Sækja um starfSérfræðilæknir á verkjamiðstöð Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við verkjamiðstöð Landspítala. Við leitum eftir sérfræðilækni sem er sjálfstæður í...
Sækja um starfHeilbrigðisgagnafræðingur á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing í 80% starf. Ráðningartími er frá...
Sækja um starfAs Sales Administrator, you will be a part of the Service Operations team. You will be responsible for the day...
Sækja um starfLæknir/læknanemar sumarstarf hjá heilsugæslum Heilbrigðisstofnun Suðurlands Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða lækna á heilsugæslustöðvar sem HSU stafrækir á Suðurlandi. ...
Sækja um starfÞroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild – BUGL Þroskaþjálfi óskast til starfa á Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Um er að ræða...
Sækja um starf