Rekstrarþjónusta óskar eftir starfsfólki í sumarvinnu í öryggisvörslu, þjónustuver og móttökur. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á lifandi starfsumhverfi og gefandi samstarf. Öryggisþjónusta skiptist í eftirlit og vaktmiðstöð. Eftirlit felst meðal annars í að bregðast við útköllum á deildir, reglulegum eftirlitshringjum og aðstoð við rekstrarþjónustu eftir þörfum. Vaktmiðstöð fylgist með öryggis- og eftirlitskerfum spítalans. Þjónustuver svarar símtölum frá innri og ytri viðskiptavinum spítalans. Móttökur eru fjölbreytt störf í aðalinngöngum spítalans á Hringbraut og í Fossvogi.
Góð íslenskukunnátta er áskilin og gerð er krafa um 20 ára lágmarksaldur.
Leitað er eftir jákvæðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingum með ríka þjónustulund og sem eru sveigjanlegir í starfi. Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli samskiptahæfni og getu til að mæta þörfum ólíkra hópa, hafa auga fyrir umbótum og stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi á fjölþjóðlegum vinnustað.
Starfsemi rekstrarþjónustu er fjölbreytt en meginhlutverk hennar er að tryggja góða þjónustu fyrir allar deildir spítalans, s.s. flutningsþjónustu, öryggisþjónustu, símaþjónustu, móttökuþjónustu og ýmsa almenna þjónustu sem styður við daglega starfsemi á spítalanum.
Leitast er eftir fólki í vaktavinnu og dagvinnu. Vinnuvika starfsfólks í dagvinnu er nú 36 stundir. Vinnuvika í fullri vaktavinnu er einnig 36 stundir en getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Unnið er á 8 tíma vöktum, allan sólahringinn. Markmið með styttingu vinnuvikunnar er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.
Öryggisþjónusta:
Þjónustuver og móttökur:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum ráðingarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal, öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Þjónustustörf, öryggisgæsla, afgreiðsla, símaver, móttaka
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2023
Viktoría Jensdóttir
–
[email protected]
Hrafnhildur Jónsdóttir
–
[email protected]
Sumarafleysing – Matartæknir Vegna sumarafleysinga er laus til umsóknar staða matartæknis í eldhúsi Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti yfirmaður er Haukur...
Sækja um starfStarfsmaður á vörulager Laus er til umsóknar staða starfsmanns á vörulager á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða 100%...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfDeildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar HVE Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra heilbrigðisupplýsinga HVE á Akranesi. Deildarstjóri er yfirmaður heilbrigðisgagnafræðinga á...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar – að vera á skrá hjá HSU Hér geta Hjúkrunarfræðingar með starfsleyfi og hjúkrunarnemar eftir þriðja ár skráð almenna...
Sækja um starfLandvarsla í þjóðgarðinum á Þingvöllum 2023 Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir eftir landvörðum í ótímabundin störf frá 16. maí 2023. Störf landvarða...
Sækja um starf