Vilt þú taka þátt í krefjandi og spennandi starfi með unglingum í sumar?
Barna- og fjölskyldustofa leitar að ráðgjöfum í sumarafleysingar á meðferðarheimilið Lækjarbakka. Um er að ræða þrjár 100% stöður í vaktavinnu. Lækjarbakki heyrir undir meðferðarsvið Barna- og fjölskyldustofu.
Persónulegir eiginleikar: Lögð er áhersla á persónulega eiginleika, svo sem góða samskiptahæfni, sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga, líkamlegt og andlegt heilbrigði, áhuga á meðferðarstörfum og skipulögð vinnubrögð.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Athugið að meðferðarheimilið er lokað í tvær vikur yfir sumarið, frá 24. júlí til og með 8. ágúst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur alla til að sækja um, óháð kyni.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.03.2023
Guðfinna Jenný Þorsteinsdóttir, Forstöðumaður
–
[email protected]
–
487-5163
Starfsfólk við aðhlynningu í sumarafleysingar á HSN Siglufirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Siglufirði óskar eftir starfsmönnum við aðhlynningu í sumarafleysingar. Ráðningartími...
Sækja um starfStarfsmaður í þjónustudeild – ræstingar/þvottahús – Fjarðabyggð – Hjúkrunarheimilið Uppsalir – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða...
Sækja um starfHeilbrigðisgagnafræðingur í sumarafleysingar á HSN Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing í sumarafleysingar á heilsugæslustöð. Ráðningatími...
Sækja um starfSumarafleysingar gjörgæsludeild – Sjúkraliðar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður sjúkraliða við gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti yfirmaður er...
Sækja um starfStarfsfólk í aðhlynningu í sumarafleysingar á HSN Húsavík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir starfsfólki í aðhlynningu á hjúkrunardeildir í...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar í sumarafleysingar á HSN Húsavík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar á sjúkra- og hjúkrunarsvið. Ráðningartími...
Sækja um starf