Sameinað sveitarfélag Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar óskar eftir að ráða sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir framsækni, krafti og metnaði til að stýra starfsemi sveitarfélagsins, leiða áframhaldandi uppbyggingu innan þess og innleiðingu breytinga í kjölfar sameiningar.
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Þingeyjarsveit er sameinað sveitarfélag úr nokkrum hreppum í Suður-Þingeyjarsýslu, Hálshreppi, Ljósavatnshreppi, Bárðdælahreppi, Reykdælahreppi, Aðaldælahreppi og nú síðast Skútustaðahreppi.
Hið nýja sveitarfélag er landmesta sveitarfélag landsins með um 12% af flatarmáli landsins og um 1.400 íbúa. Stór hluti sveitarfélagsins er í óbyggðum en byggð takmarkast við Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Kaldakinn, Bárðardal, Laxárdal, Aðaldal, Reykjadal og Mývatnssveit.
Þingeyjarsveit státar af einstakri náttúrufegurð og náttúruauðlindum. Margar af eftirsóttustu náttúruperlum Íslands eru í sveitarfélaginu s.s. Mývatn, Laxá í Aðaldal, Goðafoss, Aldeyjarfoss, Vaglaskógur, Askja og fjalladrottningin Herðubreið.
Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum m.a. í ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu.
Sveitarfélagið rekur þrjá grunnskóla og fjóra leikskóla, á Stórutjörnum, Hafralæk, Laugum og í Reykjahlíð.
Skrifstofur sveitarfélagsins eru á Laugum og í Reykjahlíð og á báðum stöðum er að finna alla nauðsynlega þjónustu. Í sveitarfélaginu starfar fólk frá ýmsum stofnunum og er aðstaða fyrir störf án staðsetningar í boði ásamt umfangsmiklu samstarfi sveitarfélagsins við ýmsar opinberar stofnanir s.s. Vatnajökulsþjóðgarð og Umhverfisstofnun. Þingeyjarsveit leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbæra nýtingu auðlinda ásamt blómlegu mannlífi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2022. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.isog Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is
Starfamerkingar: afleysing, Skólastjóri
The Financial Mechanism Office (FMO) is the secretariat of the EEA Grants and Norway Grants, and is affiliated to the...
Sækja um starfHjúkrunar- og dvalarheimilið Lundur á Hellu leitar að framsýnum leiðtoga í stöðu hjúkrunarforstjóra heimilisins. Um fullt starf er að ræða....
Sækja um starfThe European Free Trade Association (EFTA) is an intergovernmental organisation working for the promotion of free trade and economic integration...
Sækja um starfRekstrarstjóri vinnur mikið sjálfstætt og er ábyrgur fyrir daglegum rekstri í öllum útibúum WokOn. Rekstarstjóri hefur lag á að velja...
Sækja um starfVestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Framkvæmdastjóri annast stjórnun sviðsins og fer með yfirumsjón með...
Sækja um starfLeigufélagið Bríet ehf. leitar að verkefnastjóra byggingaframkvæmda með starfsstöð í Borgarnesi. Leitað er að metnaðarfullum og öflugum verkefnastjóra til að...
Sækja um starf