Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir metnaðarfullum og framsýnum starfskrafti í stöðu þjónustufulltrúa í afgreiðslu hjá embættinu. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf sem heyrir undir almenna löggæslu.
Almenn löggæsla sinnir margvíslegri þjónustu við almenning sem og þvert á embættið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 430 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
Starfið felur m.a. í sér símsvörun á þjónustuborði, almenn ritara- og skrifstofustörf, s.s. skráningu, móttöku, flokkun og afhendingu gagna, ritun, ljósritun og frágang mála. Öflun og miðlun upplýsinga til borgara, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila. Fleiri tilfallandi verkefni tengd starfsemi embættisins.
Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.
Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að sannreyna þetta er lögreglu heimil að afla upplýsinga úr sakaskrá og málskrá lögreglu sbr. 28. gr.a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu hefur verið tekin.
Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Ásmundur Rúnar Gylfason
–
[email protected]
–
444-1000
Sigríður Gisela Stefánsdóttir
–
[email protected]
–
444-1000
Skrifstofustjóri – Geðheilsuteymi HH austur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir skrifstofu- og kerfisstjóra í ótímabundið starf við Geðheilsuteymi austur sem er þverfaglegt...
Sækja um starfVilt þú veita framúrskarandi þjónustu? Heilsugæslan Miðbæ leitar að skemmtilegum, jákvæðum og lífsglöðum einstaklingi sem finnst gaman að taka á...
Sækja um starfDómritari hjá Héraðsdómi Reykjavíkur – tímabundið starf Við leitum að tímabundnum liðsauka í hóp dómritara. Starfið felst í afar fjölbreyttum...
Sækja um starfSamskiptafulltrúi á skrifstofu forstjóra Laus er til umsóknar staða samskiptafulltrúa á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða 70-80% stöðu...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfStarf gjaldkera laust á innheimtu- og skráasviði Skattsins Viltu slást í hóp einstakra gjaldkera á innheimtu- og skráasviði Skattsins? Við...
Sækja um starf