
Tónlistarskólastjóri
Sveitarfélagið Húnaþing vestra auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra við Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Um fullt starf er að ræða með kennsluskyldu. Kennsla í hljóðfæraleik fer fram á grunn-, mið- og framhaldsstigi. Næsta haust flytur tónlistarskólinn í nýtt sérhannað húsnæði, skapar flutningurinn ný og spennandi tækifæri í starfi skólans.
Um Húnaþing vestra:
Húnaþing vestra er staðsett miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins með um 600 íbúa en heildarfjöldi íbúa er um 1.220. Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig, metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf ásamt því að rekin er dreifnámsdeild frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á staðnum.
Gott framboð er af íþrótta- og tómstundastarfi. Sveitarfélagið er útvistarparadís, með góða sundlaug, íþróttahús og fjölbreytt félagsstarf. Blómlegt menningarlíf er til staðar. Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns.
Nánari upplýsingar má finna á www.hunathing.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veitir tónlistarskólanum faglega forstöðu á sviði tónlistarkennslu
- Tekur virkan þátt í þróun og skipulagi skólastarfsins og á í samvinnu við sambærilegar stofnanir
- Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
- Sinnir kennslu á sínu sviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði tónlistar
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg
- Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun í opinberri stjórnsýslu æskileg
- Reynsla af tónlistarkennslu og tónlistarflutningi
- Leiðtogahæfni, metnaður og frumkvæði
- Áhugi á skólaþróun og nýjungum
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð tölvufærni
- Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á intellecta.is.