
Verkefnastjóri reikningshalds
Vilt þú taka þátt í að byggja upp framsækinn vinnustað sem leggur áherslu á nýsköpun, aðgengi upplýsinga og stafrænar lausnir?
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugum liðsauka til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála á Íslandi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í hóp öflugra sérfræðinga í fjármálateymi. Um framtíðarstarf er að ræða.
Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun:
Hlutverk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði í þágu almennings auk þess að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og hafa virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.hms.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á færslu fjárhagsbókhalds Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og Húsnæðissjóðs (HS)
- Ábyrgð á keyrslu lánasafns úr Libra í Navision
- Ábyrgð á mánaðarlegum afstemmingum eigna og skulda
- Ábyrgð með fylgni við uppgjörsstaðla ríkisins
- Ábyrgð á skilum virðisaukaskattskýrslu og kröfu um endurgreiðslu
- Ábyrgð á færslu bókhalds úr Navision í Orra (FJS)
- Umsjón með gæðamálum fjármála
- Stýrir uppgjörsvinnu HMS og HS (mánaðarleg, árshluta- og ársuppgjör)
- Umsjón með skýrslugjöf til ytri og innri aðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf á sviði reikningshalds og endurskoðunar eða sambærilegt nám
- Yfirgripsmikil reynsla af fjárhagsbókhaldi og reikningsskilum
- Löggilding eða reynsla af endurskoðun og af uppgjörsstöðlum hins opinbera er kostur
- Góð þekking og færni á Navision
- Góð þekking og færni á Excel
- Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð
- Skipulagshæfileikar og nákvæmni
- Samskiptahæfileikar og geta til að vinna í og stýra teymi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Allir hæfir einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni, og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ólafur Þór Þorláksson, fjármálastjóri (Olafur.Thorlaksson@hms.is) í síma 440 6400 og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á intellecta.is.