Fjölmenningarsetur leitar að framsæknum og drífandi einstaklingi sem nýtur sín við að leiða fólk til árangurs.
Fjölmenningarsetur starfar eftir lögum um málefni innflytjenda nr. 116/2012. Markmið okkar er að stuðla að framþróun á sviði málefna innflytjenda. Hlutverk Fjölmenningarsetur felst í því að veita stjórnvöldum, stofnunum, fyrirtækjum, félögum og einstaklingum ráðgjöf og upplýsingar í tengslum við málefni innflytjenda. Vera sveitarfélögum til ráðgjafar við að taka á móti innflytjendum sem flytjast í sveitarfélagið, taka saman og miðla upplýsingum um réttindi og skyldur innflytjenda.
Við auglýsum eftir öflugum verkefnastjóra til að leiða verkefni í samstarfi við forstöðumann ásamt því að tryggja gæði í upplýsingamiðlun á vegum stofnana.
Við leitum að árangursdrifnum, metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi sem nær því besta fram hjá samstarfsfólki bæði innan stofnunar sem utan. Um er að ræða spennandi starf þar sem áhersla er á teymisvinnu, verkefni og góða þjónustu. Mögulegt er að sinna starfinu frá starfsstöðvum okkar víðsvegar um landið. Starfið tilheyrir sviði upplýsinga og þróunar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Fræðagarður hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni, kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum, ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf frá 1. September 2022 eða fyrr.
Fjölmenningarsetur er með starfsstöðvar á Ísafirði og í Reykjavík. Mögulegt er að sinna þessum störfum frá báðum þeim stöðum.
Fjölmenningarsetur hefur nýja og metnaðarfulla mannauðsstefnu, samskiptasáttmála sem og viðverustefnu svo dæmi sé tekið. Komdu til okkar og taktu þátt í að gera góðan vinnustað betri!
Frekari upplýsingar um Fjölmenningarsetur má sjá á www.mcc.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2022
Nichole Leigh Mosty
–
[email protected]
–
4503091
Sérfræðingur á sviði mannvirkja og sjálfbærni Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, starfræna þróun...
Sækja um starfÍ nýju matvælaráðuneyti mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og skógræktar. Áhersla er lögð á loftslagsmál, aðgengi að hollum mat...
Sækja um starfSérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild Samgöngustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu sérfræðings í flugrekstrar- og skírteinadeild flugsviðs hjá Samgöngustofu. Helstu...
Sækja um starfSkjalastjóri Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, miðlun og stafræna þróun? Húsnæðis- og mannvirkjastofnun...
Sækja um starfSjúkraliði á skilunardeild Við viljum ráða áhugasaman og metnaðarfullan sjúkraliða til starfa á skilunardeild Landspítala við Hringbraut. Skilunardeildin er spennandi...
Sækja um starfSálfræðingur barna og unglinga – Heilsugæslan Hlíðum Laust er til umsóknar tímabundið starf sálfræðings fyrir börn og unglinga við Heilsugæsluna...
Sækja um starf