Við erum að leita eftir verkefnisstjóra til að hafa heildarsýn á verkefni og verkefnastöðu hjá vinnuflokkum Vegagerðarinnar.
Vegagerðin starfrækir þrjá vinnuflokka sem hafa starfsstöð í Garðabæ, í Vík og á Hvammstanga.
Um spennandi starf er að ræða sem felur í sér tækifæri að kynnast landinu á nýjan hátt.
Vinnuflokkar fara um allt land og sjá um fjölbreytt verkefni, helstu verkefni eru viðhald og nýframkvæmdir brúa, viðhald og eftirlit ljósvita.
Um er að ræða fullt starf og starfstöðin er í Garðabæ.
Starfið er hluti af miðlægum verkefnum framkvæmdadeildar.
Ber ábyrgð á rekstri vinnuflokka Vegagerðarinnar sem sinna viðhaldi vita og brúa.
Stjórnunarleg ábyrgð á verkefnum, áætlanagerð og skipulag.
Helstu verkefni;
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdarstofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
–
[email protected]
–
5221000
Gæða- og skjalastjóri Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að kraftmiklum gæða- og skjalastjóra sem hefur áhuga á að leiða þróun gæða-...
Sækja um starfSviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands Viltu taka þátt í að móta kennslu í háskóla í fremstu röð? Háskóli Íslands leitar eftir...
Sækja um starfSálfræðingur fullorðinna – Heilsugæslan Efstaleiti Laust er til umsóknar 80-100% tímabundið starf sálfræðings fullorðinna við Heilsugæsluna Efstaleiti. Æskilegt er að...
Sækja um starfSérfræðingur á sviði fisksjúkdóma Laust er til umsóknar starf sérfræðings við Rannsóknadeild fisksjúkdóma hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að...
Sækja um starfSérfræðingur við hönnunarstjórn og jarðtæknilega hönnun Laust er til umsóknar starf sérfræðings á hönnunardeild Vegagerðarinnar. Starfsstöðin er í Garðabæ eða...
Sækja um starfSérfræðingur í fjármálum sveitarfélaga Innviðaráðuneytið leitar að öflugum sérfræðingi til að hafa umsjón með verkefnum er varða framkvæmd VII og...
Sækja um starf