
Yfirlæknir læknanema og læknakandídata
Fjöldi læknanema er við nám á Landspítala og þar taka um 45 læknakandídatar sín fyrstu skref á starfsferlinum á hverju ári. Nám læknanema er skipulagt í samvinnu við læknadeild Háskóla Íslands (HÍ) og menntadeild Landspítala. Kandídatsár lækna er skipulagt í samræmi við reglugerð 467/2015, en þar er m.a. fjallað um nám og starfsþjálfun á fyrsta ári eftir útskrift úr háskóla.
Gerð er krafa um helgun í fullu starfi innan Landspítala og er starfshlutfall í yfirlæknisstarfinu 50% og 50% í starfi sérfræðilæknis. Starfið veitist frá 1. mars 2021 eða eftir nánara samkomulagi.
» Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á áætlanagerð og rekstrarkostnaði
» Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun í samvinnu við yfirlækna, forstöðumenn og aðra stjórnendur
» Íslenskt sérfræðileyfi í lækningum
» Doktorspróf í heilbrigðisvísindum er æskilegt
» Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
» Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
» Reynsla og þekking á skipulagi kennslu og þjálfunar lækna er skilyrði
» Reynsla af teymisvinnu og vísindastarfi
» Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Nauðsynleg fylgiskjöl:
a) Vottað afrit af prófskírteinum.
b) Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).
c) Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.
d) Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.
e) Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð á síðuna eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
f) Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis, sjá hlekk á umsókn hér fyrir neðan.
g) Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs, öflugt vísindastarf og stöðugar umbætur.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á radningarkerfi.orri.is.